6 Október 2017 16:38

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, við Keilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 417 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.