23 Október 2018 15:04

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, við Keilugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 278 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.