7 Apríl 2020 22:52

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, við Keilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 470 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.