16 Ágúst 2022 11:42

Brot 31 ökumanns var myndað á Eiðsgranda í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Keilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 335 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.