5 Febrúar 2015 16:20

Brot 41 ökumanns var myndað á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í austurátt, við Keilugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 246 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.