6 Maí 2015 17:41

Brot 61 ökumanns var myndað á Eiðsgranda í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í austurátt, að Keilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 371 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.