10 Desember 2015 16:14

Brot 21 ökumanns var myndað á Eiðsgranda í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, við Boðagranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 261 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.