16 Febrúar 2011 12:00

Brot 73 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Seilugranda. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 273 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79. 

Á umræddum vegarkafla varð nýverið umferðaróhapp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin.