4 Maí 2012 12:00

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Eiríksgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiríksgötu í vesturátt, á milli Þorfinnsgötu og Barónsstígs. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 266 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52. 

Vöktun lögreglunnar á Eiríksgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu en nokkuð hefur verið kvartað undan hraðakstri í þessum borgarhluta. Lögreglan var við hraðamælingar á Barónsstíg í gær og þá reyndist brotahlutfallið vera 18%. Eftirlitinu verður framhaldið.