10 Apríl 2024 15:37

Brot 21 ökumanns var myndað á Elliðabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Elliðabraut í austurátt, við Elliðabraut 8. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Elliðabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjókoma og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.