20 Ágúst 2010 12:00

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, við Laugardalshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 61%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sextán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.