11 Ágúst 2010 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í austurátt, við Laugardalshöll. Á 30 mínútum, eftir hádegi, fóru 46 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 78%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.