22 Febrúar 2011 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í austurátt, gegnt Laugardalshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 67%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.