21 Febrúar 2011 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, gegnt Laugardalshöll. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 73%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49,65 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.