4 Júní 2015 17:37

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, á móts við Fjölskyldugarðinn. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Engjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.