17 Ágúst 2015 15:54

Brot 64 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, á móts við Fjölskyldugarðinn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Engjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.