11 Júní 2020 15:40

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, á móts við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Engjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.