27 Nóvember 2009 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Engjavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjaveg í vesturátt, á móts við Laugardalshöllina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega tíundi hluti ökumanna, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Eftirlit lögreglunnar á Engjavegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Ábendingunum var komið á framfæri á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki í hverfinu og haldinn var sl. þriðjudag.