17 Ágúst 2017 09:22

Brot 165 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Lindarvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 440 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.