7 Janúar 2021 16:17

Brot 120 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 455 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.