18 September 2014 12:00

Brot 141 ökumanns var myndað á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 371 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Nítján óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.