7 September 2015 14:24

Brot 164 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 495 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.