18 September 2015 16:57

Brot 91 ökumanns var myndað á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í austurátt, við Hlíðardalsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 430 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.