21 Júní 2016 08:50

Brot 102 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í austurátt, á móts við íþróttasvæði Breiðabliks. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 300 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.