17 September 2008 12:00

Brot 94 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, við Salaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fór 251 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sautján óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84.  

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi, en í nágrenni hans er fyrrnefndur Salaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.