2 September 2016 11:17

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.