8 Maí 2017 10:06

Brot 56 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 159 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.