7 Maí 2018 09:28

Brot 41 ökumanns var myndað á Fjallkonuvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í norðurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.