30 Ágúst 2021 14:46

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í norðurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.