5 Janúar 2022 15:06

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í norðurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 42.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjókoma, blautt og krapi var á meðan hraðamælingunni stóð.