25 Maí 2022 08:43

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í vesturátt, að Fannafold. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 55 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.