1 September 2022 09:04

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í norðurátt, við Foldaskóla. Á einni og hálfri klukkustund, fyrir hádegi, fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.