1 September 2010 12:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.