23 Maí 2012 12:00

Brot 71 ökumanns var myndað á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 146 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira. 

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.