12 September 2012 12:00

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.