27 Ágúst 2013 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í vesturátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.