26 Maí 2014 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.