27 Maí 2015 17:16

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.