29 Apríl 2009 12:00

Fimmtíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 54 ökumanna mynduð á Fjallkonuvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Foldaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 68.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Fjallkonuvegi og þá óku 41% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var jafnmikil umferð um götuna (151 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 45 km/klst.