13 Október 2010 12:00

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjarðarhraun í norðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 415 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.