8 Október 2014 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjarðarhraun í vesturátt, að Stakkahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 367 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Vöktun lögreglunnar á Fjarðarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.