3 Mars 2016 09:43

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjarðarhraun í norðurátt, að Stakkahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 460 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Fjarðarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.