13 Október 2010 12:00

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Fjarðarhrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjarðarhraun í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 606 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.