17 Mars 2009 12:00

Fjórtán ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Flatahrauni í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 14 ökumanna mynduð á Flatahrauni en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 272 ökutæki þessa akstursleið og því óku tæplega 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði og gangbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 72. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Flatahrauni og niðurstaðan er nánast sú sama á milli ári. Ökumenn sem þarna eiga leið um eru almennt til fyrirmyndar.