15 Mars 2010 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flatahraun í vesturátt, við Gjótuhraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 280 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Flatahrauni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Flatahrauni en þá óku hlutfallslega færri, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan einnig 5%.