19 Febrúar 2015 16:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flatahraun í vesturátt, á móts við Flatahraun 7. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 265 ökutæki þessa akstursleið og því óku örfáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Flatahrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.