17 Mars 2008 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Flatahrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flatahraun í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 266 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Eftirlit lögreglunnar á Flatahrauni er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Flatahrauni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.