31 Mars 2009 12:00

Tuttugu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 20 ökumanna mynduð á Fléttuvöllum en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því óku 45% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, hraðahindranir, gangbrautir og göngustígar. Sá sem hraðast ók mældist á 51.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Fléttuvöllum. Þá óku líka alltof margir of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 41%. Meðalhraði hinna brotlegu er hinsvegar sá sami á milli ára.