30 Mars 2010 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í suðurátt, að Glitvöllum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Fléttuvöllum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Fléttuvöllum en þá óku hlutfallslega enn fleiri, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 41%.