19 Apríl 2011 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í suðurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið verið 33-45% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið svipaður á milli ára, eða um 43 km/klst.